
Af fingrum fram hefur nú sitt 17. starfsár í Salnum í Kópavogi en í þessari sívinsælu spjalltónleikaröð tekur Jón Ólafsson á móti fjölbreyttum hópi listafólks þar sem einlæg samtöl, skemmtilegar sögur úr tónlistarlífinu og lifandi flutningur ráða ríkjum og skapa þannig einstaka kvöldstund. Tónleikaröðin á rætur sínar að að rekja til samnefndra sjónvarpsþátta sem meðal annars hlutu Edduverðlaunin árið 2002. Fyrir 17 árum ákvað gestgjafinn að flytja hugmyndina úr sjónvarpssal og yfir á svið Salarins í Kópavogi við mikinn fögnuð landans sem flykkst hafa á tónleikaröðina allar götur síðan. Jón Ólafsson er samur við sig þennan tónleikaveturinn og fær áfram til sín fjölbreyttan flokk listafólks í