
Á Menningarnótt 2026 er Harpa 15 ára. Af því tilefni býður hönnunarteymið ÞYKJÓ börnum, fjölskyldum, vinum og vandamönnum að skapa saman litríkar afmæliskórónur sem hægt er að krýnast í tilefni dagsins. Smiðjan hentar öllum aldurshópum, er ókeypis og öll hjartanlega velkomin. Norðurbryggju á jarðhæð Hörpu, 13 – 17. ÞYKJÓ er hópur hönnuða með fjölbreyttan bakgrunn sem samnýta ólíka sérþekkingu í teymisvinnu sinni. Innan vébanda ÞYKJÓ eru arkitekt, leikja- og vöruhönnuður, fatahönnuður og klæðskeri og leikmynda- og búningahönnuður. Hönnunarstarf ÞYKJÓ miðar að því að örva ímyndunarafl og sköpunarkraft barna í frjálsum leik. Í hönnunarvinnu höfum við til hliðsjónar hvernig hægt er að örva snert