
Mandólín er ekki algengt einleikshljóðfæri á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands en nú ber svo við að okkur heimsækir þekktasti mandólínleikari samtímans, Avi Avital. Hann er heillandi tónlistarmaður og göldróttur á hljóðfæri sitt. Á þessum tónleikum sýnir hann snilli sína í laufléttum konsert frá klassíska tímanum eftir Johann Nepomuk Hummel og einnig í konsert fyrir mandólín og blokkflautu eftir meistara Bach þar sem hljómsveitarstjórinn Giovanni Antonini leikur á blokkflautuna. Antonini er aufúsugestur hingað til lands sem beðið hefur verið eftir enda stjórnar hann öllum fremstu sinfóníuhljómsveitum heims. Antonini stjórnar hér ennfremur tveimur sinfóníum klassíska tímans, annarri efti