
Bambaló – Tónlistarstund fyrir yngstu börnin Boðið verður upp á dásamlega samsöngstund fyrir yngstu börnin og foreldra í Hörpuhorni á Menningarnótt. Stundin er sérstaklega hönnuð fyrir börn á aldrinum 1–5 ára; róleg, hlý og full af tónlistartöfrum. Hvenær: 22. ágúst kl. 13:00 - 13:40Hvar: HörpuhornAldur: 1–5 ára og foreldrar Tungumál: Íslenska (hægt að spyrja spurninga á ensku) Aðgangur: Ókeypis – skráning ekki nauðsynleg Sigrún Harðardóttir leiðir viðburðinn en hún er tónlistarkona og verkefnastjóri barnamenningar í Hörpu.