
Gagnrýnendur hafa vart undan því að lofa píanóleik Bertrands Chamayou. Efnisval hans hefur verið kallað frumlegt og leitandi, leikurinn kraftmikill, tæknilega fullkominn og hrífandi fagur. Ljóð án orða er leiðarstef þessara tónleika, þar sem öll efnisskráin tengist sönglögum sem orðið hafa tónskáldum innblástur. Smálög Mendelssohns, Ljóð án orða, eru viðeigandi upphaf þessa ferðalags. Þeim fylgir tónlist sem rímar vel við hógvær og innileg lög Mendelssohns, þar á meðal Söngur án (góðra) orða eftir Charles Ives, „Tileinkun“ Schumanns og dreymandi upprifjun Kurtágs á gleymdum rúmenskum jólasálmi. Vangaveltur George Crumbs um sígildan ópus Thelonious Monks ’Round Midnight, í Eine kleine Mittern