
Blúsfélag Reykjavíkur gengst fyrir blúshátíð í Hörpu á Menningarnótt þar sem sveitirnar CC Fleet Blues Band, Refill og Ebenezer halda uppi þéttri stemningu og flytja tregablandinn, kraftmikinn og fjölbreyttan blús. Blúsfélag Reykjavíkur var stofnað árið 2003 og hefur allar götur síðan staðið fyrir metnaðarfullu tónleikahaldi þar sem helstu merkisberar blústónlistar á Íslandi hafa stigið á stokk. Tónleikarnir fara fram í Flóa, björtu og fallegu alrými á jarðhæð Hörpu þaðan sem njóta má útsýnis yfir fjöll og flóa. Léttar veitingar til sölu. Kl. 12:00 – 12:30 CC Fleet Blues Band Jón Ingiberg Jósteinsson, gítar og söngur, Gunnar Örn Sigurðsson, gítar, Jakob Viðar Guðmundsson, bassi, Ragnar Ólaso