
Tónlistarmaðurinn fjölhæfi Daníel Ágúst verður gestur samstarfsfélaga síns til margra ára, Jóns Ólafssonar í tónleikaröðinni Af fingrum fram í Salnum þann 11. mars, 2027. Daníel Ágúst sló fyrst í gegn með hljómsveitinni Nýdönsk þegar lagið Hólmfríður Júlíusdóttir kom út. Hljómsveitin starfar enn og þeir eru ófáir smellirnir sem Daníel hefur samið og/eða sungið í þeim félagsskap. Má þar nefna lög eins og Horfðu til himins og Fullkomið farartæki. Hann er einnig meðlimur í Gus Gus sem er ekki síður vinsæl og á einnig góðu fylgi að fagna á erlendri grundu. Daníel hefur einnig sent frá sér sólóplötur auk þess að leika á sviði og í bíómyndum. Það er von á góðu þegar söngvari Gus Gus og Nýdönsk hei