
Komum saman og fögnum dansinum í Hörpuhorni á Menningarnótt. Inga Maren Rúnarsdóttir dansari og danshöfundur kennir stuttan og skemmtilegan dans sem hentar öllum aldurshópum en dansinn samdi hún fyrir Alþjóðlega dansdaginn 2026. Áskell Harðarson þeytir skífum. Viðburðurinn er haldinn í samstarfi við Dansverkstæðið, Félag íslenskra listdansara og Íslenska dansflokkinn. Við hlökkum til að fagna dansinum með ykkur öllum!