
Níunda sinfónía Ludwigs van Beethoven er af mörgum talin eitt glæsilegasta tónverk sögunnar. Form hennar og dramatískt umfang er mikilfenglegt og hún stendur fyllilega undir þeirri nafnbót að teljast til eins af hornsteinum vestrænnar tónlistarsögu. Eftir fyrstu þrjá þættina sem mótaðir eru af miklum innri átökum, færir fjórði þátturinn von og trú á mannkynið með túlkun tónskáldsins á Óðnum til gleðinnar eftir Friedrich Schiller. Sinfóníuna má líta á sem stórfenglega brýningu til mannkyns um að leita samkenndar og mennsku í gleðinni. Einsöngvarar tónleikanna eru meðal þekktustu söngvara þjóðarinnar að ógleymdum tenórsöngvaranum Stuart Skelton. Sinfóníuhljómsveit Íslands, Söngsveitin Fílharmó