
Carola kemur til Íslands með einstaka tónleikasýningu Ein ástsælasta og farsælasta söngkona Norðurlanda, Carola Häggkvist, kemur til Reykjavíkur í nóvember með glænýja tónleikasýningu sem er ólík öllu því sem aðdáendur hennar hafa áður upplifað. Carola hefur verið meðal skærustu stjarna sænskrar dægurtónlistar í meira en fjóra áratugi. Frá því hún sló í gegn með laginu Främling árið 1983 hefur hún selt milljónir platna, unnið Eurovision og skipað sér sess sem einn vinsælasti tónlistarmaður Norðurlanda. Nú leggur hún af stað í sérstakt tónleikaferðalag um Norðurlönd þar sem hún býður áhorfendum inn í persónulegan heim sinn. Ásamt píanóleikaranum Will Oaks flytur hún lögin sem hafa markað feri