
Elín Ósk mun fara yfir farinn veg, 40 söngárin sín, en í október 1986 söng hún sitt fyrsta óperuhlutverk, Toscu úr samnefndri óperu eftir Puccini við Þjóðleikhúsið aðeins 25 ára gömul. Hún fékk fádæma góða gagnrýni dagblaðanna. Mbl/Jón Ásgeirsson skrifaði m.a.: „Elín komst ekki aðeins vel frá verki heldur bókstaflega sló í gegn og hafði full tök á bæði leik og söng.“ DV/Eyjólfur Melsted skrifaði: „Dramatískan sópran á borð við Elínu Ósk hefur okkur bæði dreymt um og vantað um nokkurt skeið. Það er hrein unun að heyra hvernig hún nýtir sér sitt stóra raddsvið og sú er ekki í vandræðum að keyra í dýptinni.“ Síðan hefur Elín Ósk komið víða við á söngsviðinu og heillað áheyrendur og gagnrýnendur