
Hin heimsþekkta Elisabeth Leonskaja nýtir Íslandsheimsókn sína vel og hér býðst öllum unnendum píanótónlistar einstakt tækifæri til að upplifa blæbrigðaríkan leik hennar á einleikstónleikum. Leonskaja fæddist í Georgíu rétt eftir að síðari heimsstyrjöldinni lauk. Hún sigraði Enesco píanókeppnina árið 1964 og lék til dæmis dúó tónleika með hinum goðsagnakennda Sviatoslav Richter. Frá árinu 1978 hefur Leonskaja verið búsett í Vínarborg og þaðan kemur hún með tónlist tveggja meistara í farteskinu. Hér hljómar annars vegar fantasía Beethovens sem líklegt er að tónskáldið hafi fyrst leikið af fingrum fram á risavöxnum tónleikum árið 1808, áður en hann festi verkið á blað ári síðar. Hins vegar tek