
Isabelle Faust hefur verið einn eftirsóttasti fiðluleikari heims um árabil. Hún er Íslendingum að góðu kunn eftir að hafa verið staðarlistamaður hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands á árunum 2010-11 og heimsótt okkur nokkrum sinnum eftir það. Á þessum tónleikum leikur hún margverðlaunaðan fiðlukonsert eftir eitt þekktasta núlifandi tónskáld Ástralíu, Brett Dean, þar sem viðfangsefnið er hin týnda list bréfaskrifta. Þá verður frumflutt tónverkið Djúpið – Sálumessa eftir Hjálmar H. Ragnarsson, en hann lést í mars 2026. Í þessu tregafulla verki minnist hann vina og annarra sem gengið hafa af eigin hvötum yfir þröskuldinn sem aðskilur okkar verun og heim hins óþekkta. Djúpið – Sálumessa var síðasta hl