
Tveir vinsælustu leikarar þjóðarinnar slá í púkk og heimsækja Jón í Salinn! Á dagskránni verður að finna ódauðleg lög úr leikhúsinum í bland við ólíklegustu tónlist. Enginn yrði hissa þó eitthvað yrði spunnið á staðnum. Hallgrímur Ólafsson & Guðjón Davíð Karlsson hafa leikið saman í vinsælum leiksýningum eins og Óvitum, Gauragangi og Ormstungu – svo eitthvað sé nefnt. Við þekkjum þá einnig úr sjónvarpsþáttum og bíómyndum og hugsanlega kíkja í heimsókn þeir Magnús M. Magnússon og Kalli Selló. // Tónleikaröðin Af fingrum fram hefur nú sitt 17. starfsár í Salnum í Kópavogi. Í þessari sívinsælu spjalltónleikaröð tekur Jón Ólafsson á móti fjölbreyttum hópi listafólks þar sem einlæg samtöl, skemmt