
Einkasýning Helga Þorgils Friðjónssonar á Hlöðuloftinu, Korpúlfsstöðum, 11. apríl – 10. maí 2026 Anna Eyjólfsdóttir nefndi það við mig fyrir nokkrum árum hvort ég vildi ekki sýna á Hlöðuloftinu. Þá var húsnæðið allt hrárra en það er í dag. Ég var strax til það. Mér finnst svona hrátt húsnæði alltaf spennandi og bjóða aðra möguleika en hefðbundið spegilslétt og pússað gallerí eða á listasafni þó það sé líka gott á sína vísu. Ég hugsaði strax að ég vildi hafa salinn að mestu óbreyttan og ég mundi vilja hafa skúlptúra í honum miðjum. Ég ákvað líka að ég mundi nota veggina fyrir stór málverk sem ég hef ekki getað sýnt sökum stærðar sinnar áður. Fyrst hugsaði ég mér rúmlega 16 fermetra málverk Íslenskir fuglar sem ég málaði 2010 sem ég hef aldrei séð í heild sinni. Það var gaman að sjá það fyrir mig. Svo setti ég upp tíu metra málverk sem ég málaði 1980 og sýndi í Norræna húsinu í janúar 1981. Það heitir Morgun og svo nótt. Síðan hefur það verið of stórt fyrir aðrar sýningar. Mér fannst ...