
Í aðdraganda fyrirhugaðrar þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið býður Paradigm til beittra og upplýsandi rökræðna í Silfurbergi í Hörpu sunnudaginn 16. ágúst kl. 20:00. Á fundinum takast á fulltrúar þeirra sem hyggjast greiða atkvæði með og á móti því að Ísland hefji aðildarviðræður við Evrópusambandið. Með: Jónas Hagan og Hjálmar Vilhjálmsson, stjórnarmenn í hreyfingunni Já til að sjá, sem tala fyrir já-sjónarmiðinu. Á móti: Guðlaugur Þór Þórðarson og Diljá Mist Einarsdóttir, þingmenn Sjálfstæðisflokksins, sem tala fyrir nei-sjónarmiðinu. Markmið kvöldsins er að varpa skýru ljósi á helstu rök beggja fylkinga og gefa áhorfendum færi á að mynda sér upplýsta sko