
Tónlistarmaðurinn og „Sólstrandagæinn“ Jónas Sig verður gestur Jóns Ólafssonar í tónleikaröðinni Af fingrum fram í Salnum 5. nóvember, 2026. Þorlákshafnar Jónas sló í gegn með Sólstrandargæjunum og þjóðin söng með af lífi og sál. Í kjölfarið fór hann til Danmerkur að vinna fyrir Microsoft og beið hans björt framtíð við tölvuforritun. Tónlistin togaði þó í hann og flutti hann aftur til Íslands og lét skeika að sköpuðu undir eigin nafni ásamt Ritvélum framtíðarinnar. Íslendingar voru meira en tilbúnir að taka Sólstrandagæjann aftur upp á arma sína og Jónas hefur vart litið um öxl síðan! // Tónleikaröðin Af fingrum fram hefur nú sitt 17. starfsár í Salnum í Kópavogi. Í þessari sívinsælu spjallt