
Flytjendur: Oddur Arnþór Jónsson, söngur Stefán Jón Bernharðsson, horn Mathias Susaas Halvorsen, píanó Ari Þór Vilhjálmsson, fiðla Rannveig Marta Sarc, fiðla Svava Bernharðsdóttir, víóla Sigurgeir Agnarsson, selló Á upphafstónleikum afmælisárs Kammermúsíkklúbbsins fá áheyrendur að heyra verk sex ólíkra tónskálda, þriggja íslenskra og þriggja erlendra. Oddur Arnþór Jónsson baritón stígur á svið í tveimur ástsælum kammerverkum, Dover Beach fyrir rödd og strengjakvartett eftir bandaríska tónskáldið Samuel Barber og Auf dem Strom fyrir rödd, horn og píanó eftir Franz Schubert, sem samdi verkið til að heiðra Beethoven á fyrsta dánarafmæli hans. Á fyrri hluta tónleikanna leika Rannveig Marta Sarc