
Flytjendur: Sigurbjörn Bernharðsson, fiðla Gunnhildur Daðadóttir, fiðla Þórunn Ósk Marinósdóttir, víóla Rita Porfiris, víóla Sigurður Bjarki Gunnarsson, selló Bryndís Halla Gylfadóttir, selló Á tónleikunum gefst einstakt tækifæri til að heyra tvö af mikilvægustu strengjatríóum 20. aldarinnar. Hinn tékkneski Gideon Klein samdi tríóið sitt árið 1944 í Theresienstadt fangabúðunum og lauk við það aðeins nokkrum dögum áður en hann var sendur þaðan til Auschwitz. Hinn rússneski Alfred Schnittke bjó og starfaði lengst af í Moskvu, en stundaði tónsmíðanám ungur að árum í Vínarborg þar sem hann heillaðist af tónskáldum seinni Vínarskólans. Strengjatríóið sitt tileinkaði hann einu þessara tónskálda, A