
Flytjendur: Pétur Björnsson, fiðla Guðbjartur Hákonarson, víóla Urh Mrak, selló Elena Postumi, píanó Á tónleikunum hljóma verk eftir þrjú tónskáld sem eiga það sameiginlegt að hafa fæðst á 19. öld og upplifað gríðarlegar samfélagslegar breytingar á æviskeiði sínu, en allir lifðu þeir fram yfir síðari heimsstyrjöld. Verkin þrjú sem flutt verða á tónleikunum voru öll samin milli 1885 og 1919. Tónleikarnir hefjast á Serenöðu í C-dúr fyrir strengjatríó eftir Erno Dohnanyi, einn merkasta tónlistarmanna Ungverjalands sem naut alþjóðlegrar hylli sem tónskáld, píanóleikari og hljómsveitarstjóri. Serenaðan er kraftmikið og líflegt verk í fimm köflum og má heyra í henni áhrif Brahms og ungverskrar alþ