
Flytjendur: Strengjakvartettinn Meta4 Antti Tikkanen, fiðla Minna Pensola, fiðla Atte Kilpeläinen, víóla Tomas Djupsjöbacka, selló Það er stórviðburður að einn af eftirsóttustu strengjakvartettum Norðurlandanna, Meta4 kvartettinn frá Finnlandi komi fram á lokatónleikum starfsársins. Er þetta jafnframt fyrsta sinn í 10 ár sem alþjóðlegur kvartett spilar á vegum Kammermúsíkklúbbsins. Meta4 hefur starfað frá árinu 2001 og á fyrsta áratug kvartettsins vann hann til verðlauna í Moskvu og í Vínarborg og var valinn af BBC sem New Generation Artist. Kvartettinn leikur reglulega í fremstu tónleikahúsum heims og hefur gefið út upptökur með strengjakvartettum eftir Haydn, Bartók og Saariaho auk strengj