
Elisabeth Leonskaja hefur átt glæstan feril sem píanóleikari í um 60 ár -og þessi hógværa drottning hljóðfærisins heillar enn áheyrendur með litskrúðugum leik sínum og innblásinni túlkun. Á þessum tónleikunum Sinfóníuhljómsveitar Íslands leikur hún hinn gullfallega píanókonsert nr. 24 í c-moll eftir W.A. Mozart, sem er einn af hans þekktustu og mest leiknu píanókonsertum. Tomáš Hanus, aðalgestastjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Íslands, leiðir hljómsveitina einnig í gegnum hið stórfenglega Má vlast eftir samlanda sinn, tékkneska tónskáldið Bedřich Smetana. Tónverkið hefur aldrei áður verið flutt hér í heild sinni en það er samsett úr sex sjálfstæðum tónaljóðum sem öll tengjast náttúru og sögu B