
Hinn óviðjafnanlegi lúðrasveitabardagi ársins verður háður á Hörputorgi á Menningarnótt. Þar mætast rótgrónar lúðrasveitir og etja kappi í tónlist með alls kyns sprelli og húllumhæi. Mútur, svik, spilling og prettir er það sem kemur mönnum áfram í þessum glæsilega leðjuslag sem er orðinn einn af hápunktum Menningarnætur. Dagskráin á Hörputorgi á Menningarnótt er í boði Hörpu og Landsbankans.