
Bryndís Guðjónsdóttir sópran Eva Þyri Hilmarsdóttir píanóleikari Efnisskráin, sem hverfist í kringum tvo stórkostlega ljóðaflokka, leiðir áheyrandann í gegnum tónheim tveggja stórmeistara þýsku rómantíkurinnar; Gustavs Mahler og Richards Strauss. Verk þeirra einkennast af margslunginni tilfinningadýpt og afar fínlegri meðhöndlun texta og tóna. Mörg laganna eiga það sameiginlegt að vera ýmist flutt með sinfóníuhljómsveit eða píanói, enda bæði tónskáldin einstaklega sinfónískt þenkjandi og afbragðs píanóleikarar. Tónleikarnir hefjast með hinu leikandi og þjóðlega Wer hat das Liedlein erdacht? eftir Mahler úr Des Knaben Wunderhorn (Drengurinn með töfrahornið), sem er safn þýskra þjóðvísa sem mö