
MORGAN JAY er tónlistarmaður og uppistandari búsettur í Los Angeles. Hann hefur vakið verðskuldaða athygli í MTV-þáttunum Wild’n’Out sem og á NBC og Comedy Central, auk þess sem hann var valinn „New Face“ á grínhátíðinni Just For Laughs árið 2023. Morgan á ítalskar og brasilískar rætur og sækir tónlistarinnblástur sinn í þann bakgrunn ásamt uppvextinum á tíunda áratugnum. Hann hóf feril sinn í New York þar sem hann stundaði nám við hinn virta Tisch School of the Arts, samhliða því að stíga sín fyrstu skref í uppistandi á börum og neðanjarðarklúbbum borgarinnar. Leiklistarferill Morgans fer ört vaxandi. Hann lauk nýverið tökum á kvikmynd Joey Power, LOVE LANGUAGE, þar sem hann fer með hlutver