
Vestfirðingurinn og tónlistarmaðurinn góðkunni Mugison verður gestur Jóns Ólafssonar í tónleikaröðinni Af fingrum fram í Salnum 27. janúar, 2027. Örn Elías Guðmundsson er ákaflega ástsæll á meðal Íslendinga enda fáir verið duglegri að heimsækja landsbyggðina. Hann kallar sig Mugison og er alveg sér á parti á íslenskri tónlistarsenu. Hljómplatan Haglél tryggði honum heiðurssæti og lög eins og Stingum af eru orðin hluti af íslenskri þjóðarsál. Það er óhætt að segja að hér verði um að ræða ansi gott kvöld! // Tónleikaröðin Af fingrum fram hefur nú sitt 17. starfsár í Salnum í Kópavogi. Í þessari sívinsælu spjalltónleikaröð tekur Jón Ólafsson á móti fjölbreyttum hópi listafólks þar sem einlæg sa