
Orkester Norden er eitt af mörgum norrænum samstarfsverkefnum Lionshreyfingarinnar. Upphafið á sér rætur í Svíþjóð á árunum 1986-1987 þegar þáverandi alþjóðaforseti Lions fól sænskum Lionsfélaga, Lennart Fridén, að finna samnorrænt verkefni fyrir ungt fólk á aldrinum 15-25 ára. Hljómsveitin heldur nú hljómsveitarnámskeið og tónleika á Íslandi í fyrsta skipti undir merkjum Lions á Íslandi! Orkester Norden er hvert ár skipuð 40-80 hæfileikaríkum ungmennum frá Norðurlöndunum og Eystrasaltsríkjunum sem eru sérstaklega valin til þátttöku eftir strangt inntökuferli. Átta daga æfingarbúðir eru á Akureyri fyrir tónleikana undir stjórn þekktra norrænna leiðbeinenda. Þar á meðal eru Björg Brjánsdóttir