
Listrænn stjórnandi og aðalhljómsveitarstjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands, Barbara Hannigan færir okkur tónleika sem hjúpaðir eru dulúð og sækja innblástur í fornar goðsagnir. Staðarlistamaðurinn, Bertrand Chamayou píanóleikari og Rafael Adobas Bayog, nýráðinn leiðari flautudeildar hljómsveitarinnar, eru í einleikshlutverkum kvöldsins. Einn af meisturum litbrigðanna, bandaríska tónskáldið George Crumb, dregur upp draugalega mynd af ímynduðu landslagi þar sem andar fortíðar eru á sveimi. Dreymandi einleikur Debussys um grísku gyðjuna Syrinx leiðir okkur svo inn í tónaljóðið Luonnotar fyrir sópran og hljómsveit eftir finnska tónskáldið Jean Sibelius. Þar flytur Hannigan á ljóðrænan hátt sögun