
Fáar tónleikasýningar hafa náð þeim einstaka alþjóðlega árangri sem Simon & Garfunkel: Sagan öll! hefur náð. Uppselt hefur verið á allar sýningar frá upphafi í mörgum af helstu tónleikahöllum heims. Sýnt hefur verið í yfir 50 löndum hingað til. Sýningin sló fyrst í gegn í London Palladium á West End. Simon & Garfunkel: Sagan öll! fjallar um ótrúlegan uppgang eins þekktasta dúetts tónlistarsögunnar sem og gríðarlegar vinsældir þeirra á sjöunda og áttunda áratugnum. Öll tónlist í sýningunni er flutt af söngvurum og hljómsveit beint frá West End í London. Þekktustu lög Simon & Garfunkel munu öll hljóma, þar á meðal Mrs. Robinson, Cecilia, Bridge Over Troubled Water, The Sound of Silence, Homewa