
Á tónlistarhátíðinni Myrkum Músíkdögum er ný tónlist í brennidepli. Sinfóníuhljómsveit Íslands frumflytur tvö tónverk eftir þá Kjartan Sveinsson og Hauk Tómasson. Þá eiga Bára Gísladóttir, Þuríður Jónsdóttir og Clara Iannotta einnig verk á efnisskránni. Kjartan er ótrúlega fjölhæfur tónlistarmaður og tónskáld. Þekktur sem einn af forsprökkum hljómsveitarinnar Sigur Rósar en einnig fyrir tónsmíðar sem fluttar hafa verið víða um heim. Haukur Tómasson er á meðal okkar fremstu tónskálda og hefur hljómsveitin flutt og hljóðritað fjölda verka hans. Ferill Báru Gísladóttur er á hraðri uppleið og á þessum tónleikum verður verk hennar, sea sons seasons, flutt í fyrsta sinn á Íslandi. Þar veltir tónsk