
Sjóðheitir salsatónar með Barrio 27 í Hörpu á Menningarnótt. Barrio 27 er sextán manna salsasveit sem hefur vakið athygli fyrir kraftmikinn tónlistarflutning, líflega sviðsframkomu og dansvæna og fjöruga efnisskrá frá Kúbu, Puerto Rico, Kólumbíu og víðar. Barrio 27 vakti mikla hrifningu á Jazzhátíð Reykjavíkur 2025 og hlaut lofsamlega dóma í tónlistarmiðlunum Jazz in Europe og All About Jazz. Slagverksleikarinn Alexandra Rós Norðkvist er stofnandi sveitarinnar en hún stundar nú nám við Codarts í Hollandi þar sem hún sérhæfir sig í tónlist frá Karíbahafseyjum og Suður-Ameríku. Markmið Barrio 27 er meðal annars að efla dansmenningu á Íslandi. Hér gefst því einstakt tækifæri til að njóta frábær