
Stórsveit Reykjavíkur og jazzdívan Kristjana Stefánsdóttir bjóða upp á ómótstæðilega stórsveitarsveiflu í Silfurbergi á Menningarnótt. Dansvæn og grípandi lög hljóma í frábærum flutningi undir stjórn Sigurðar Flosasonar. Komið, njótið og sveiflið ykkur með. Stórsveit Reykjavíkur var stofnuð árið 1992 og er fjölmennasti tónlistarhópur landsins í heimi rytmískrar tónlistar. Verkefnaval hennar er víðfeðmt en hún flytur jöfnum höndum nýja og framsækna íslenska og erlenda tónlist í bland við vinsæl, eldri verk með mörgum af þekktustu söngvurum þjóðarinnar. Stórsveitin býður einnig árlega upp á tónleika sem eru sniðnir fyrir börn og fjölskyldur sem og stórsveitarmaraþon en þar koma saman allar stó