
Sycamore Tree í 10 ár Stórglæsilegir afmælistónleikar í Silfurbergi, Hörpu, 4. september. Í ár fagnar Sycamore Tree 10 ára afmæli og af því tilefni heldur sveitin stórglæsilega afmælistónleika í Hörpu þann 4. September. Einvalalið hljóðfæraleikara mun verða þeim Ágústu Evu og Gunna Hilmars til aðstoðar við að gera kvöldið að ógleymanlegu ævintýri. Síðasta áratuginn hefur Sycamore Tree skipað sér sess meðal vinsælustu hljómsveita landsins með fjölda laga sem notið hafa mikilla vinsælda á íslenskum útvarpsstöðvum og haldið fjöldamarga tónleika. Kvöldstund með Sycamore Tree er eins og tónlistin þeirra, fallegt ferðalag sem snertir hjörtu hlustenda. Á tónleikunum í Hörpu mun sveitin fara í gegnu