
Tan Dun er eitt af þekktustu tónskáldum samtímans og er hvað þekktastur fyrir að hafa náð að tengja saman kínverska og vestræna tónlistarhefð á listilegan máta. Hann er þekktur fyrir sinfónísk verk sín jafnt sem kvikmyndatónlist og hefur hlotið fjölda viðurkenninga og verðlauna fyrir verk sín, þ. á m., Grammy-, BAFTA- og Óskarsverðlaunin fyrir tónlist sína við kvikmyndina Crouching Tiger, Hidden Dragon. Hann er góðvildarsendiherra UNESCO á sviði vatnaverndar, enda er vatn og önnur frumefni afar algengt yrkisefni í verkum hans. Leiðari pákudeildar Sinfóníuhljómsveitar Íslands, Soraya Nayyar, mun leika hinn einstaka vatns-konsert eftir Tan Dun, þar sem vatnið er oft og tíðum aðal einleikshljóð