
Á tónleikum Ungsveitar Sinfóníuhljómsveitar Íslands fá tónleikagestir tækifæri til að horfa inn í framtíð íslensks tónlistar lífs. Á ári hverju tekst unga fólkið okkar á við metnaðarfullt verkefni úr tónlistarsögunni sem þau velja sjálf eftir umhugsun og rökræður. Nú verður fyrir valinu glæsilegt hljómsveitarverk RimskíjKorsakovs sem byggt er á ævintýraheimi Þúsund og einnar nætur en þann sagnaheim spinnur hin heillandi Sheherazade kvöld eftir kvöld fyrir soldáninn og bjargar þannig lífi sínu. Hljómur sinfóníuhljómsveita verður tæplega mikið litríkari en í einmitt þessu tónverki enda var Rimskíj-Korsakov yfirburða meistari í því að skrifa fyrir hljómsveit. Verkið er það langvinsælasta eftir