
Benjamín Gísli Einarsson kemur fram í tónleikaröðinni Velkomin heim sunnudaginn 12. júlí klukkan 16. Tónleikaröðin er á vegum FÍT og FÍH í samstarfi við Hörpu. Tónleikarnir fara fram í Hörpuhorni, annarri hæð Hörpu. Aðgangur er ókeypis og öll hjartanlega velkomin. Benjamín Gísli Einarsson er einn af fremstu jazzpíanóleikurum landsins og hefur vakið athygli fyrir sinn lagræna stíl, tilfinningaríka spilamennsku og fágaðan tón. Þótt hann sé jazzmenntaður nær tónlist hans langt út fyrir þá skilgreiningu—hún sameinar áhrif frá klassískri tónlist, kvikmyndatónlist og spunakenndum köflum í anda Keith Jarrets. Fyrir Benjamín er píanóið ekki bara hljóðfæri, heldur leið til að kanna nýjar hugmyndir, m